Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027
19 October kl: 10:19Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
2.01 2025 13:14
|
Hafdís Sigurðardóttir hlýtur Gullhjálminn 2024
Það er mjög gleðilegt að tilkynna að Hafdís Sigurðardóttir fær Gullhjálminn 2025. Hafdís er einstök fyrirmynd og hefur með dugnaði og óbilandi eldmóði sett sterkan svip á hjólreiðasamfélagið á Íslandi. Í ár bárust yfir 50 tilnefningar til Gullhjálmsins sem veittur er af Hjólavarpinu og Hjólreiðasambandi Íslands.
Hún hefur ekki aðeins náð eftirtektarverðum árangri í eigin ferli sem hjólreiðakona, heldur einnig lagt sig óþreytandi fram við að hvetja aðra til dáða.
Með stofnun hópsins Akureyrardætur hefur Hafdís haft gríðarleg áhrif á hjólreiðamenningu á Akureyri og víðar. Hún hefur innblásið fjölda kvenna til að stíga á hjólið og er lifandi dæmi um að aldrei er of seint að elta draumana sína. „Konur þurfa að læra að setja sig í fyrsta sæti og taka tíma fyrir sjálfar sig,“ sagði Hafdís þegar hún ræddi við Hjólavarpið fyrr á árinu. Hafdís var sömuleiðis valin hjólreiðakona ársins 2024 af Hjólreiðasambandi Íslands. Á meðal afreka hennar er þátttaka á heimsmeistaramótum og framúrskarandi frammistaða í alþjóðlegum keppnum en samhliða því hefur hún stuðlað að aukinni uppbyggingu innan sportsins.
Gullhjálmurinn er veittur til að heiðra þá sem stuðla að uppbyggingu hjólreiðasamfélagsins. Hafdís er svo sannarlega vel að þessum verðlaunum komin, og óskum við henni hjartanlega til hamingju með þessa viðurkenningu.
Hafdís var gestur í Hjólavarpinu í Október á síðasta ári og fór yfir hjólaferil sinn. Þáttur með Hafdísi Sigurðardóttir
Björgvin Jónsson
Síðast breytt þann 3. January 2025 kl: 10:13 af Björgvin Jónsson
Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri
Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend
Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S
Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend
Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da
Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei
Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor
Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,
Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu
Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna
Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág
Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et