Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027
19 October kl: 10:19Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
16.08 2026 00:00
|
Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldið af Hjólreiðafélagi Reykjavíkur að þessu sinni.
Íslandsmeistarar 2026 og með besta tíma dagsins voru þau Helga Lísa Kvaran (HFR) og Gunnar Erik Cevers (HFR). Er þetta þriðji Íslandsmeistaratitill Helgu Lísu en hún vann tvö ár í röð árin 2021 og 2022. Hinsvegar er hér um að ræða fyrsta Íslandsmeistaratitill Gunnars, en hann var þó íslandsmeistari í U17 flokknum í fyrra. Gunnar er nýorðinn 17 ára gamall.
Hjólreiðasambandið óskar nýjum Íslandsmeisturum innilega til hamingju með árangurinn og einnig Hjólreiðafélagi Reykjavíkur fyrir vel heppnaða keppni.
Í öðru sæti í kvenna flokki var Sylvía Mörk Kristinsdóttir og í því þriðja Harpa Kristín Guðnadóttir.
Koma þær báðar úr HFA og eru ekki nema 15 og 16 ára að aldri. Í öðru sæti í karla flokki var svo Íslandsmeistarinn frá 2024, Jóhann Arnór Elíasson og í því þriðja Brynjar Logi Friðriksson.
Úrslit dagsins voru þessi:
A-Flokkur KK (Elite)
1. Gunnar Erik Cevers - HFR
2. Jóhann Arnór Elíasson - Afturelding
3. Brynjar Logi Friðriksson - HFR
A-Flokkur KVK (Elite)
1. Helga Lísa Kvaran - HFR
2. Sylvía Mörk Kristinsdóttir - HFA
3. Harpa Kristín Guðnadóttir - HFA
Junior KK
1. Veigar Bjarni Sigurdarson - BFH
2. Stormur Snorrason - HFR
3. Aage L'orange Magnússon - HFR
U17 KK
1. Óli Bjarni Ólason - HFA
2. Alexander Pham Guðmundsson - Afturelding
3. Kristján Þór Jóhannsson - Afturelding
U15 KK
1. Atli Rafn Gíslason - HFR
2. Kristófer Leví Pétursson - HFR
3. Mikael Arason - Hjól Vest
U13 KK
1. Bjarmi Sær Jónsson - Afturelding
Master 35+ KK
1. Ari Steinar Svansson - HFR
2. Óskar Sigurðsson - Hjól Vest
Sjá má öll úrslit inni á Tímataka.net
Björgvin Jónsson
Síðast breytt þann 16. August 2026 kl: 22:25 af Björgvin Jónsson
Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri
Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend
Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S
Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend
Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da
Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei
Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor
Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,
Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu
Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna
Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág
Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et