EM í Slóveníu - Keppnisdagur 1

2.10 2026 17:56 | ummæli

Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppendur þar. Davíð Jónsson, Baldur Þorkelsson og Breki Gunnarsson voru meðal 139 keppenda frá 38 þjóðum, en hjólaðir voru 142 kílómetrar frá Ljúblíana í átt að fjallendi í norðri þar sem þrír hringir voru hjólaðir, með mikilli hækkun og lækkun.

Strákarnir áttu góða byrjun á deginum en í keppni við einhverja af þeim bestu í heiminum getur margt gerst. Meðalhraðinn á hópnum fyrstu 75km var yfir 50km/klst og á leiðinni var slys þegar keppendur skullu saman og margir flugu á hausinn, en Baldur var þar á meðal. Hann slasaðist lítillega en varð að hætta keppni í kjölfarið. Breki hélt vel í hópinn framanaf en eftir um 85km varð hann að hætta keppni. Davíð komst 107km en var að glíma við veikindi og ákvað að hætta keppni til að eiga betri möguleika á árangri í seinni keppnisgreininni, tímatökunni, sem fer fram í næstu viku.

 

Á morgun keppa karlar undir 19 ára fyrri part dags, og seinni partinn keppa elite konur, og eigum við keppendur í báðum flokkum. Fyrir Íslands hönd munu Sólon Kári Sölvason, Einar Valur Bjarnason og Þorbergur Anton Pálsson keppa í U19, og Bríet Kristý Gunnarsdóttir í flokki elite kvenna.

Björgvin Jónsson

Síðast breytt þann 2. October 2026 kl: 17:56 af Björgvin Jónsson

Ummæli

Aðrar fréttir

Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027

19 October kl: 10:19

Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.

Seinasti keppnisdagur landsliðsins á EM í götuhjólreiðum - TT

7 October kl: 21:12

Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - þriðji keppnisdagur

5 October kl: 09:17

Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - annar keppnisdagur

3 October kl: 10:07

Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S

EM í Slóveníu - Keppnisdagur 1

2 October kl: 17:56

Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu

2 October kl: 00:00

Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da

HM í Montreal, Kanada

26 September kl: 22:16

Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei

Fjallabrunskeppninni í Isaberg, Svíþjóð

21 September kl: 11:50

Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor

HM Montreal - Davíð keppir í dag í TT

21 September kl: 10:18

Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,

HM í Götuhjólreiðum Montreal 20. til 27. september

14 September kl: 23:05

Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu

Hæfileikabúðir HRÍ 2026 Ísafirði

7 September kl: 14:15

Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna

Haust hæfileikabúðir HRÍ Ísafirði

31 August kl: 22:42

Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði

Íslandsmótið í Maraþon fjallahjólreiðum (XCM) 2026

28 August kl: 12:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e

Íslandsmót í XCM - ný tímasetning

19 August kl: 11:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág

Íslandsmót í Fjallabruni 2026

16 August kl: 00:00

Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et