Fréttir

Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027

19.10 2026 10:19 | ummæli

Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík. Skipuleggjendur voru að venju Hjólreiðafélag Reykjavíkur. Mótstjóri var Ármann Gylfason. Sigurvegarar í Elíte flokkum í ár voru þau Kristín Edda Sveinsdóttir og Davíð Jónsson, bæði úr HFR.  

Seinasti keppnisdagur landsliðsins á EM í götuhjólreiðum - TT

7.10 2026 21:12 | ummæli

Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyrir alla.

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - þriðji keppnisdagur

5.10 2026 09:17 | ummæli

Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppendur mættir til leiks og þar áttum við einn fulltrúa Íslands í hópnum, Kristinn Jónsson. Keppnisbrautin var sú sama og í elite kvenna keppninni, en í stað tveggja hringja í lokin voru farnir fimm, og heildarvegalengdin því 197 km. 

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - annar keppnisdagur

3.10 2026 10:07 | ummæli

Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau Sólon Kári Sölvason, Einar Valur Bjarnason og Þorbergur Anton Pálsson og Bríet Kristý Gunnarsdóttir í flokki elite kvenna. 

EM í Slóveníu - Keppnisdagur 1

2.10 2026 17:56 | ummæli

Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppendur þar. Davíð Jónsson, Baldur Þorkelsson og Breki Gunnarsson voru meðal 139 keppenda frá 38 þjóðum, en hjólaðir voru 142 kílómetrar frá Ljúblíana í átt að fjallendi í norðri þar sem þrír hringir voru hjólaðir, með mikilli hækkun og lækkun.

EM í götuhjólreiðum Slóveníu

2.10 2026 00:00 | ummæli

Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem dagana 2. til 7. október fer fram Evrópumótið í götuhjólreiðum.

HM í Montreal, Kanada

26.09 2026 22:16 | ummæli

Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólreiðum í ár. Keppti hann í U23 flokki, en þetta er í seinasta árið hans í þeim aldursflokki þar sem hann verður 23. ára á næsta ári og því ekki gjaldgengur í þeim flokki.

Fjallabrunskeppninni í Isaberg, Svíþjóð

21.09 2026 11:50 | ummæli

Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka þátt í Fjallabrunskeppninni - SWE Cup #4 - Downhill Isaberg. Keppnin sjálf fer svo fram sunnudaginn 27. september.

HM Montreal - Davíð keppir í dag í TT

21.09 2026 10:18 | ummæli

Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal, Kanada.

HM í Götuhjólreiðum Montreal 20. til 27. september

14.09 2026 23:05 | ummæli

Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirsóttu regnbogatreyjur. Nú í ár munum við eiga einn þátttakandi sem mun klæðast landsliðsgallanum okkar í Montréal.