Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027
19 October kl: 10:19Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
24.08 2014 23:29
|
Aðstæður voru meira krefjandi í Hvalfirðinum í dag, í samanburði við aðstæður á Reykjanesi í blíðviðrinu í gær.
Fimm keppendur í karlaflokki tóku forystu snemma í keppninni, þeir Hafsteinn Ægir, bræðurnir Ingvar og Óskar, auk Helga Páls og Bjarna Garðars. Þeir héldu hópinn allt þar til innan við kílómeter var eftir í endamarkið. Fór svo að Ingvar hafði góðan sigur í endaspretti við keppinauta sína, Hafsteinn varð í öðru sæti og Helgi Páll í því þriðja. Óskar, sem hafði 15 sekúndna forskot á aðra keppendur í heildarkeppninni fyrir síðustu dagleið missti 14 sekúndur á hina fjóra og mátti því ekki tæpara standa að hann missti af sigri í heildarkeppninni.
Fjórar konur tóku þátt í þessari dagleið Landskeppninnar. Corinna leiddi keppnina lengi framan af, en góð samvinna systranna Sigrúnar og Vigdísar Hallgrímsdætra gerði þeim kleyft að saxa á forskot Corinnar og fara fram úr. Vigdís hafði betur í endaspretti og kom 19 sekúndum á undan systur sinni í mark.
Hjólamenn þakka öllum keppendum fyrir skemmtilega helgi og frábæra keppni, þar sem einungis fimm sekúndur skildu að fyrsta þrjá í heildarkeppni í opnum flokki karla. Viðureignin var lifandi og er liðstaktík greinilega farin að spila stærra hlutverk í hjólreiðakeppnum hér á landi. Það hljóta að teljast merki þess að sportið sé að þroskast og því ber að fagna.
Að lokinni verðlaunaafhendingu tilkynnti stjórn Hjólamanna að þeir hafi nú ákveðið að sleppa takinu á Landskeppninni og mun hún því ekki vera á keppnisdagskrá Hjólreiðasambandsins á næsta ári. Hún var upphaflega hugsuð sem landskeppni Íslands og Færeyja. Undanfarin ár hafa Færeyjingar verið afskaplega duglegir að heimsækja okkur til að taka þátt í keppninni, en Íslendingar ekki verið eins duglegir að heimsækja Færeyjar til að taka þátt í Færeyjatúrnum. Eftir vel heppnaðan fimm daga Færeyjatúr fyrr í sumar er skiljanlegt að þeim hafi ekki þótt eins eftirsóknarvert að taka þátt í tiltölulega litlum þriggja daga viðburði á Íslandi. Í kjölfar þessarar tilkynningar var orðið gefið frjálst og það rætt hvernig rækta mætti samband okkar við Færeyingana samhliða því að búa til enn stærri viðburð en þann sem Landskeppnin var. Svo það geti orðið, þurfa hjólreiðafélögin á landinu að sameinast um það verkefni. Það verður að teljast nokkuð spennandi verkefni.
Hér eru úrslit 3. umferðar Landskeppninnar: http://hjolamot.is/keppni/61
Hér eru úrslit í heildarkeppninni: http://hjolamot.is/motaradir/11/A/Karl
Hér eru myndir sem voru teknar í Landskeppninni í ár: https://www.flickr.com/photos/hjolamenn/sets/72157646104937279/
Síðast breytt þann 25. August 2014 kl: 00:03 af
Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri
Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend
Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S
Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend
Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da
Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei
Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor
Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,
Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu
Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna
Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág
Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et