Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027
19 October kl: 10:19Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
5.09 2025 22:41
|
Adrían Uni Þorgilsson, aðeins 8 ára gamall, keppti fyrir hönd Íslands á Norðurlandameistaramótinu í keppnis-BMX hjólreiðum, sem fram fór í Bjerringbro í Danmörku á laugardaginn síðasta. Þar náði hann 6. sæti í sínum flokki, meðal fremstu ungu hjólreiðamanna á Norðurlöndunum, en um 300 BMX hjólarar frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finlandi, Litháen, Eistlandi og Íslandi tóku þátt í mótinu. Á sunnudaginn tók Adrían síðan þátt í Bjerringbro Open, þar sem hann tryggði sér 2. sætið.
Þessi árangur er sérstaklega eftirtektarverður í ljósi þess að engin æfingaaðstaða fyrir keppnis-BMX er til staðar á Íslandi og sýnir það vel hversu efnilegur hann er.
Adrían byrjaði að æfa BMX Racing þegar hann var fjögurra ára í Bretlandi, þar sem móðir hans stundaði nám. Þegar fjölskyldan flutti aftur til Íslands var engin aðstaða til reglulegra æfinga í greininni. Adrían færði sig þá yfir í fjallahjólreiðar Enduro og Downhill, sem hann æfir af miklum krafti í fjöllunum í kringum Ísafjörð, þar sem fjölskyldan býr.
Mótshaldarar Norðurlandameistarmótsins töluðu mikið um hversu ánægjulegt það er að Ísland væri að stíga sín fyrstu skref inn í heim keppnis-BMX hjólreiða, en þess má geta að Keppnis BMX hefur verið Ólympísk keppnisíþrótt frá árinu 2008. Þessi glæsilegi árangur Adríans sýnir okkur að þótt við Íslendingar eigum ekki keppnisbraut þá eigum við efnilega keppendur sem hafa mikinn áhuga á íþróttinni og getu til þess að ná langt. ![]()
Félagið Krummar BMX er nýlegt félag sem býður upp á æfingar í keppnis-BMX hjólreiðum á pumpubraut við Lundarból í Garðabæ. Yfirþjálfari félagsins er Helgi Berg Friðþjófsson en hann hefur mikla reynslu af hjólreiðum, bæði sem keppandi og þjálfari, og heldur utan um æfingar í Garðabæ. Faðir Adríans, Þorgils Óttarr Erlingsson, hefur þjálfað hann á Ísafirði. Frekari upplýsingar um íþróttina og æfingar má finna á vefsíðu félagsins www.krummar.is
Björgvin Jónsson
Síðast breytt þann 5. September 2025 kl: 23:13 af Björgvin Jónsson
Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri
Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend
Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S
Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend
Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da
Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei
Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor
Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,
Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu
Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna
Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág
Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et