Krónan fjallahjólamót, úrslit

13.05 2018 00:00 | ummæli

Úrslit úr öðru bikarmóti sumarsins í fjallahjólreiðum.

Önnur umferð í bikarmótaröðinni í fjallahjólreiðum fór fram laugardaginn 12. maí. Sama dag fór fram almenningsmót í fjallahjólreiðum. Það voru hjólreiðafélagið Tindur og Krónan í samstarfi við Mjölni sem héldu mótið en það fór fram í Öskjuhlíð.  

Einungis einn keppandi var skráður í meistaraflokk kvenna, Halla Jónsdóttir, HFR. Hún hjólaði þrjá hringi og kom hún í mark á tímanum 01:13:25.  

Í meistaraflokki karla hafði Hafsteinn Ægir Geirsson, HFR, betur gegn Ingvari Ómarssyni, Breiðabliki sem lenti í öðru sæti. Í þriðja sæti var Bjarki Bjarnason, HFR. Karlarnir hjóluðu fimm hringi. Hafsteinn kom í mark á tímanum 01:26:45 og var Ingvar þremur mínútum á eftir honum. Eru þeir Hafsteinn og Ingvar jafnir að stigum nú þegar tvær umferðir eru búnar af mótaröðinni.  

Einn keppandi var í junior-flokki karla, en það var Dagur Eggertsson, Tindi, sem hjólaði tvo hringi á tímanum 00:47:18. Einnig var einn keppandi í U-17, Steinar Þór Smári sem hjólaði einn hring á tímanum 00:32:01.  

Í flokki drengja U15 var hjólaður einn hringur. Þar sigraði Fannar Freyr Atlason, Tindi. Í öðru sæti var Davíð Jónsson, HFR. Í þriðja sæti var Breki Blær Rögnvaldsson, HFR og í fjórða sæti var Snorri Karel Friðjónsson.  

Í almenningsmótinu hjóluðu bæði karlar og konur tvo hringi. Efstu þrjú sætin voru þessi: 

Konur:
1. Elsa Gunnarsdóttir, HFR
2. Sædís Ólafsdóttir, HFR
3. Hrafnhildur Sigurðardóttir, utan félags 

Karlar:
1. Oddur Steinn Einarsson, utan félags
2. Gunnar Örn Svavarsson, HFR
3. Eyjólfur Ari Bjarnason, utan félags 

Loks var haldið spark- og barnahjolamót. Voru 32 þátttakendur skráðir til leiks, en sparkhjólamótið var ætlað þátttakendum á aldrinum 2–5 ára og barnahjólamótið fyrir 6–12 ára. Stóðu allir sig þar með prýði og fóru heim með verðlaunapening.  

Öll úrslit má sjá á timataka.net.

 

Halldóra Kristinsdóttir

Síðast breytt þann 13. May 2018 kl: 14:34 af Halldóra Kristinsdóttir

Ummæli

Aðrar fréttir

Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027

19 October kl: 10:19

Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.

Seinasti keppnisdagur landsliðsins á EM í götuhjólreiðum - TT

7 October kl: 21:12

Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - þriðji keppnisdagur

5 October kl: 09:17

Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - annar keppnisdagur

3 October kl: 10:07

Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S

EM í Slóveníu - Keppnisdagur 1

2 October kl: 17:56

Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu

2 October kl: 00:00

Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da

HM í Montreal, Kanada

26 September kl: 22:16

Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei

Fjallabrunskeppninni í Isaberg, Svíþjóð

21 September kl: 11:50

Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor

HM Montreal - Davíð keppir í dag í TT

21 September kl: 10:18

Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,

HM í Götuhjólreiðum Montreal 20. til 27. september

14 September kl: 23:05

Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu

Hæfileikabúðir HRÍ 2026 Ísafirði

7 September kl: 14:15

Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna

Haust hæfileikabúðir HRÍ Ísafirði

31 August kl: 22:42

Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði

Íslandsmótið í Maraþon fjallahjólreiðum (XCM) 2026

28 August kl: 12:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e

Íslandsmót í XCM - ný tímasetning

19 August kl: 11:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág

Íslandsmót í Fjallabruni 2026

16 August kl: 00:00

Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et