Kosning Gullhjálmurinn 2025

2.01 2026 11:43 | ummæli

Hjólavarpið og Hjólreiðasamband Íslands hafa nú opnað fyrir kosningu vegna Gullhjálmsins 2025 og er öllum frjálst að kjósa. Innsendar tilnefningar voru fjölmargar, en þessi þrjú sem hér eru tilnefnd fengu lang flestar tilnefningar í ár.
Frestur til að kjósa rennur út föstudaginn 9. janúar.
Hér að neðan má sjá þá aðila sem tilnefndir eru og stuttan texta um hverja tilnefningu. Helsta markmið Gullhjálmsins er að beina sjónum að þeim fjölmörgu sem leggja sitt af mörkum við uppbyggingu hjólreiðasamfélagsins á Íslandi.

Birgir Birgisson og reiðhjólabændur eru tilnefnd til Gullhjálmsins fyrir óeigingjarnt og ötult starf í þágu reiðhjólasamfélagsins. Hann hefur leitt hjólasöfnun fyrir börn og útvegar hjól fyrir fólk sem hefðu annars ekki aðgang að þeim. Auk þess að halda utan um opið verkstæði, samhjól og hjólaviðburði. Samhliða þessu hefur Birgir barist fyrir bættum reiðhjólainnviðum og umferðaröryggi. Verkstæði reiðhjólabænda hefur tekið öllum opnum örmum og stuðlað að bættu umhverfi fyrir innflytjendur og flóttafólk sem hefur fundið sinn samastað þar. Framlag Birgis og reiðhjólabænda hefur haft djúpstæð áhrif á hjólasamfélagið og hjálpað fjölda fólks.

Erlendur S. Þorsteinsson er formaður Landssamtaka hjólreiðamanna og hefur barist af mikilli elju fyrir bættum aðstæðum hjólreiðafólks og góðum samgöngum. Erlendur hefur verið óþreytandi við að vekja athygli á því sem betur má fara, sér í lagi það sem snýr að öryggismálum. Hann leggur mikla áherslu á að efla hjólamenningu, bæði hjá hjólreiðafólki og bílstjórum. Með óbilandi þrautseigju og baráttu hefur Erlendur stuðlað að betri innviðum, auknu öryggi og umbótum í hjólamálum. Hann er hetjan sem þorir þegar aðrir þegja og hjólreiðasamfélagið kann svo sannarlega að meta.

María Sæmundsdóttir, eða Mæja Sæm eins og margir þekkja hana, er sannkölluð driffjöður innan Breiðabliks og í hjólreiðasamfélaginu. Hún er tilnefnd til Gullhjálmsins fyrir óeigingjarnt og ómetanlegt starf við mótshald og uppbyggingu félagsins, þar fara saman fagmennska, skipulag og eldmóður. Mæja er meistara mótsstjóri með einstaka peppandi orku sem smitar út frá sér. Það ættu allir að eiga eina Mæju!!


Kjósa má hérna !!

Björgvin Jónsson

Síðast breytt þann 2. January 2026 kl: 11:50 af Björgvin Jónsson

Ummæli

Aðrar fréttir

Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027

19 October kl: 10:19

Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.

Seinasti keppnisdagur landsliðsins á EM í götuhjólreiðum - TT

7 October kl: 21:12

Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - þriðji keppnisdagur

5 October kl: 09:17

Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - annar keppnisdagur

3 October kl: 10:07

Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S

EM í Slóveníu - Keppnisdagur 1

2 October kl: 17:56

Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu

2 October kl: 00:00

Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da

HM í Montreal, Kanada

26 September kl: 22:16

Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei

Fjallabrunskeppninni í Isaberg, Svíþjóð

21 September kl: 11:50

Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor

HM Montreal - Davíð keppir í dag í TT

21 September kl: 10:18

Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,

HM í Götuhjólreiðum Montreal 20. til 27. september

14 September kl: 23:05

Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu

Hæfileikabúðir HRÍ 2026 Ísafirði

7 September kl: 14:15

Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna

Haust hæfileikabúðir HRÍ Ísafirði

31 August kl: 22:42

Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði

Íslandsmótið í Maraþon fjallahjólreiðum (XCM) 2026

28 August kl: 12:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e

Íslandsmót í XCM - ný tímasetning

19 August kl: 11:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág

Íslandsmót í Fjallabruni 2026

16 August kl: 00:00

Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et