Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027
19 October kl: 10:19Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
5.08 2014 23:49
|
Nánari upplýsingar um Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum.
Hjólreiðasamband Íslands (HRÍ) heldur Íslandsmeistaramótið í götuhjólreiðum sunnudaginn 10. ágúst kl. 10.
Lýsing leiðar:
Hjólað verður frá Grindavík austur Suðurstrandarveg (427). Karlaflokkur snýr við á hringtorgi hjá Þorlákshafnarvegi eftir um 66,5 km. Kvennaflokkur snýr við á keilu eftir um 42,5 km. Unglingaflokkar snúa við á keilu eftir um 35 km.
Strava segment fyrir karlaflokk: http://www.strava.com/segments/7731853
Flokkar:
Meistaraflokkur karla (um 113 km)
Meistaraflokkur kvenna (um 85 km)
Unglingaflokkur karla 17-18 (um 70 km)
Unglingaflokkur karla 16 ára og yngri (um 70 km)
Unglingaflokkur kvenna 17-18 (um 70 km)
Unglingaflokkur kvenna 16 ára og yngri (um 70 km)
Í meistaraflokki karla og kvenna verður keppt í eftirfarandi aldursflokkum:
19-29 ára
30-39 ára
40-49 ára
50 ára og eldri
Miðað er við fæðingarár viðkomandi keppanda.
HRÍ áskilur sér rétt til að fella niður flokka eða sameina ef þáttaka reynist ekki næg.
Rásröð:
Flokkar verða ræstir út með a.m.k. 2 mínútna millibili í eftirfarandi röð:
Meistaraflokkur karla
Meistaraflokkur kvenna
Unglingaflokkar karla
Unglingaflokkar kvenna
HRÍ áskilur sér rétt til að sameina ræsingu flokka ef þáttaka gefur tilefni til. Ekki er leyfilegt að nýta sér skjól af öðrum keppendum en þeim sem eru í sama flokki og viðkomandi keppandi.
Skráning:
Skráningargjald er kr. 3.500 og fer skráning fram á www.hjolamot.is
Skráningu lýkur fimmtudaginn 7. ágúst kl. 23:59. Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafi einnig borist. Ekki verður tekið við skráningum né greiðslum á keppnisstað.
Bankaupplýsingar:
kt. 440505-1470
Reikningur nr. 0545-26-051470
Vinsamlega sendið greiðslukvittun úr heimabanka á hjolreidanefnd@gmail.com þar sem nafn keppanda kemur skýrt fram.
Afhending rásnúmera / verðlaunaafhending:
Afhending rásnúmera og tímaflaga fer fram milli kl. 9 og 9:30 á keppnisdag í Íþróttamiðstöðinni í Grindavík, Austurvegi 1-3. Mikilvægt er að keppendur skili tímaflögum til mótsstjórnar að lokinni keppni. Verðlaunaafhending fer einnig fram í Íþróttamiðstöðinni.
Kort af staðsetningu Íþróttamiðstöðvarinnar í Grindavík:
Fylgdarbílar:
Fylgdarbílar eru leyfðir í brautinni. Þeir skulu í einu og öllu fara eftir fyrirmælum keppnisstjóra og skulu aldrei fara fram úr undanfara/dómara. Eftir snúning þegar komið er að Ísólfsskálabrekku eru fylgdarbílar ekki lengur leyfilegir í brautinni og skulu þá keyra beint í mark án frekari afskipta af keppendum.
Staðsetning rásmarks/endamarks: UPPFÆRT 6. ÁGÚST
Rásmark/endamark verður staðsett rétt VESTAN við tjaldsvæði á Austurvegi. Nánari myndir af staðsetningu endamarks verða birtar fljótlegar. Kort af tjaldsvæðinu í Grindavík:
http://ja.is/kort/?type=aerialnl&x=331269&y=375890&z=9&q=tjaldsv%C3%A6%C3%B0i%20grindav%C3%ADkur
Annað:
Keppendur eru alfarið á eigin ábyrgð.
Hjálmaskylda er í öllum keppnum innan HRÍ
Keppendur eru minntir á að virða almennar umferðareglur.
Keppendur án flögu eða með flögu vitlaust festa fá ekki tíma.
Síðast breytt þann 6. August 2014 kl: 15:42 af
Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.
Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri
Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend
Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S
Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend
Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da
Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei
Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor
Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,
Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu
Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna
Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e
Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág
Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et