Boðað er til Hjólreiðaþings 2025

28.02 2025 10:29 | ummæli

Hjólreiðasamband Íslands boðar til Hjólreiðaþings laugardaginn 1.mars klukkan 14.00

Hjólreiðasamband Íslands boðar til Hjólreiðaþings laugardaginn 1.mars klukkan 14.00.

Þingið fer fram í fundarsal B og C hjá ÍSÍ á Engjavegi 6.

Dagskrá þingsins er eftirfarandi

a) Þingsetning.
b) Kosning þriggja manna í kjörbréfanefnd. Nefndin skal yfir fara kjörbréf og gera grein fyrir störfum sínum áður en dagskrárliður hefst.
c) Kosning fyrsta og annars þingforseta.
d) Kosning fyrsta og annars þingritara.
e) Fráfarandi stjórn gefur skýrslu sína.
f) Gjaldkeri leggur fram skoðaða reikninga HRÍ.
g) Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
h) Ávörp gesta
i) Skipað í starfsnefndir þingsins.
j) Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfstímabil, ásamt tillögum um félagagjöld og keppnisgjöld.
k) Lagðar fram lagabreytingar sem stjórninni hafa borist með löglegum fyrirvara.
l) Teknar til umræðu aðrar tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnarinnar.
m) Nefndaálit og tillögur.
n) Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar og framkomin mál.
o) Önnur mál.
p) Álit kjörnefndar.
q) Kosning kjörnefndar 
r) Kosning stjórnar sbr. 10. gr.
s) Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
t) Kosning fulltrúa og varafulltrúa HRÍ á Íþróttaþing ÍSÍ árið sem Íþróttaþing fer fram, skv. lögum ÍSÍ.
u) Þingslit. 

Ekki liggja fyrir lagabreytingar að þessu sinni en núverandi lög má finna hér.

Kosið verður í 4 sæti í stjórn að þessu sinni, 3 til tveggja ára og eitt til eins árs og er ljóst að það vantar að minnsta kosti 2 framboð, þar sem Björgvin Tómasson hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér áfram og einnig hætti Arnfríður Sigurdórsdóttir eftir hálft ár í stjórn.

Sendið tilnefningar á hri.kjornefnd@gmail.com


Hér er Teams hlekkur á Hjólreiðaþing.

 

Björgvin Jónsson

Síðast breytt þann 2. March 2025 kl: 23:20 af Björgvin Jónsson

Ummæli

Aðrar fréttir

Íslandsmótið í Cyclocross 2026-2027

19 October kl: 10:19

Um helgina fór fram Íslandsmótið í Cyclocross (CX) tímabilsins 2026-2027 við Gufunesbæ, Reykjavík.

Seinasti keppnisdagur landsliðsins á EM í götuhjólreiðum - TT

7 October kl: 21:12

Í dag var keppt í tímatöku í öllum flokkum, en einfalt keppnis fyrirkomulag gerði daginn þægilegan fyri

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - þriðji keppnisdagur

5 October kl: 09:17

Síðasta keppnin í hópstarti á EM fór fram í gær, en þá kepptu elite karlar. Voru 115 keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu - annar keppnisdagur

3 October kl: 10:07

Í dag fara fram keppnir í Junior flokki (undir 19 ára) og í Elite flokki kvenna. Fyrir Íslands hönd keppa þau S

EM í Slóveníu - Keppnisdagur 1

2 October kl: 17:56

Í dag var fyrsti keppnisdagur, en þá var keppt í karlaflokki undir 23 ára og áttum við þrjá keppend

EM í götuhjólreiðum Slóveníu

2 October kl: 00:00

Íslenska landsliðið í götuhjólreiðum er mætt til Ljúblíana, Slóveníu þar sem da

HM í Montreal, Kanada

26 September kl: 22:16

Davíð Jónsson var einn Íslendinga til að taka þátt í heimsmeistarakeppninni í götuhjólrei

Fjallabrunskeppninni í Isaberg, Svíþjóð

21 September kl: 11:50

Næsta miðvikudag (ef flugvirkjar Icelandair leyfa) fara sjö fjallahjólarar til Svíþjóðar að taka &thor

HM Montreal - Davíð keppir í dag í TT

21 September kl: 10:18

Í dag fer fram Tímatöku keppnin í U23 keppni heimsmeistaramótsins í Götuhjólreiðum í Montreal,

HM í Götuhjólreiðum Montreal 20. til 27. september

14 September kl: 23:05

Frá 20. til 27. september 2026 munu um 1.000 keppendur alls staðar að úr heiminum keppa í 13 keppnisgreinum um hinar eftirs&oacu

Hæfileikabúðir HRÍ 2026 Ísafirði

7 September kl: 14:15

Um helgina voru hæfileikabúðir haldnar inn í Tungudal á Ísafirði með góðri aðstoð heimamanna

Haust hæfileikabúðir HRÍ Ísafirði

31 August kl: 22:42

Aðrar hæfileikabúðir Hjólreiðasambands Íslands á þessu ári fara fram á Ísafirði

Íslandsmótið í Maraþon fjallahjólreiðum (XCM) 2026

28 August kl: 12:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum (XCM) fór fram í Mosfellsbæ í gær. A&e

Íslandsmót í XCM - ný tímasetning

19 August kl: 11:50

Íslandsmótið í Maraþonfjallahjólreiðum sem fara átti fram í Mosfellsbæ þann 15. ág

Íslandsmót í Fjallabruni 2026

16 August kl: 00:00

Íslandsmótið í Fjallabruni fór fram í dag í Úlfarsfelli, Reykjavík. Mótið var haldi&et