Íslandsmeistaramót í fjallahjólreiðum - Almenningskeppni

Dagsetning

21. Jul 2018


Skipuleggjendur

Hjólreiðafélag Akureyrar

Staðsetning

Ólafsfjörður


Mótsstjóri

Ekki skráð

Upplýsingar

Almenningskeppni í fjallahjólreiðum haldin í tengslum við Íslandsmeistaramótið sem Skíðafélag Ólafsfjarðar stendur fyrir í samstarfi við Hjólreiðafélag Akureyrar á Ólafsfirði þann 21. júlí kl. 12:00. Keppnin fer fram á lokaðari braut á skíðasvæði SÓ, Tindaöxl sem er rétt fyrir ofan bæinn. Brautin er gönguskíðabraut en hefur verið lagfærð og breytt fyrir fjallahjólakeppnina til að gera hana fjölbreytta og skemmtilega.

Margt verður um að vera þessa helgi á Ólafsfirði s.s. sápuboltamót og ball um kvöldið en SÓ mun sjá um barnahjólamót og samhjól á fjallahjólum frá Siglufirði til Ólafsfjarðar yfir Botnsheiði á sunnudeginum. Nánari upplýsingar koma síðar.

Hjól

Í almenningskeppni eru öll hjól leyfileg, mælt er með fjallahjóli (hardtail eða fulldempuðu).

Búnaður

Allir skulu nota hjálm í keppninni og skulu hjólin vera í góðu standi.

Brautarskoðanir

Brautarskoðun föstudaginn 20. júlí kl. 18:00 og 20:00, laugardaginn 21. júlí kl. 10:00.  Mæting við Skíðaskálann Í Tindaöxl.  

Reglur

Keppt er á sama tíma í Íslandsmeistaramóti svo keppendur sem eru í brautinni þurfa að fylga reglum HRÍ og hleypa fram úr sér ef þarf, gefa keppendum í Íslandsmeistaramótinu forgang. Hjálmaskylda er í öllum keppnum og skulu hjól vera lögleg og allur búnaður í lagi.  Brautin er ca. 4,5 km að lengd en getur tekið breytingum fram að keppni, nánari upplýsingar um hana koma fljótlega. 

Í almenningskeppni er keppt í flokki kvenna og karla og þurfa keppendur að hafa náð 18 ára aldri. Hvetjum við þá sem yngri eru, allt niður í 13 ára að taka þátt í Íslandsmeistaramótinu sem fer fram á sama tíma, því þar er keppt í aldursflokkum.

Keppnisfyrirkomulag: Hópstart nema þátttaka kalli á annað. Mótstjórn áskilur sér rétt til að ræsa flokka á mismunandi tímum ef skráningafjöldi er mikill sem og að breyta fjölda hringja ef breyta þarf braut.

Afhending gagna er kl.10:00 -11:00 við mótssvæðið við skíðaskálann í Tindaöxl. Mætið tímanlega og gangi ykkur vel!

Keppnisgjald

Keppnisgjald er 4.000 kr og skal greiðast inn á reikning SÓ nr. 0347-26-1810, kt. 591001-2720.  Skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjald hefur verið greitt.

Annað

Upplýsingar um barnamót og fjallahjólaferð á sunnudaginn má finna hér: http://skiol.fjallabyggd.is/is/news/samhjol_og_barnamot__sunnudag_22.juli/

Upplýsingar

Keppnisgrein: Fjallahjólreiðar

Lengd:

Rástími: 21. Jul 2018 kl: 12:00

Tegund: Almenningsmót

Flokkar

Almenningsflokkur

Karlar í flokknum Almenningsflokkur (4)

Nafn UCI ID Félag
Nafn
Elís Hólm Þórðarson Utan félags
Nr: 3 Félag: Utan félags Aldurshópur: Almenningsflokkur Flokkur: Almenningsflokkur Stig: 0
Kristján Hauksson Hjólreiðafélag Akureyrar
Nr: 1 Félag: Hjólreiðafélag Akureyrar Aldurshópur: Almenningsflokkur Flokkur: Almenningsflokkur Stig: 0
Kristófer Beck Elísson Utan félags
Nr: 6 Félag: Utan félags Aldurshópur: Almenningsflokkur Flokkur: Almenningsflokkur Stig: 0
Sigurður Jónsson Hjólreiðafélag Akureyrar
Nr: 2 Félag: Hjólreiðafélag Akureyrar Aldurshópur: Almenningsflokkur Flokkur: Almenningsflokkur Stig: 0

Konur í flokknum Almenningsflokkur (1)

Nafn UCI ID Félag
Nafn
Elsa Guðrún Jónsdóttir Utan félags
Nr: 5 Félag: Utan félags Aldurshópur: Almenningsflokkur Flokkur: Almenningsflokkur Stig: 0

Úrslit eru væntanleg

Engin úrslit fundust